Völundarkviða
Frá Völundi
Níðaður hét konungur í Svíþjóð. Hann átti tvo sonu og eina dóttur. Hún hét Böðvildur. Bræður vóru þrír, synir Finnakonungs. Hét einn Slagfiður, annar Egill, þriðji Völundur. Þeir skriðu og veiddu dýr. Þeir kómu í Úlfdali og gerðu sér það hús. Þar er vatn er heitir Úlfsjár. Snemma um morgun fundu þeir á vatnsströndu konur þrjár, og spunnu lín. Þar vóru hjá þeim álftarhamir þeirra. Það vóru valkyrjur. Þar vóru tvær dætur Hlöðvés konungs, Hlaðguður svanhvít og Hervör alvitur, in þriðja var Ölrún Kjársdóttir af Vallandi. Þeir höfðu þær heim til skála með sér. Fékk Egill Ölrúnar en Slagfiður Svanhvítrar, en Völundur Alvitrar. Þau bjuggu sjö vetur. Þá flugu þær að vitja víga og kómu eigi aftur. Þá skreið Egill að leita Ölrúnar en Slagfiður leitaði Svanhvítrar en Völundur sat í Úlfdölum. Hann var hagastur maður svo að menn viti í fornum sögum. Níðuður konungur lét hann höndum taka svo sem hér er um kveðið:
- Meyjar flugu sunnanmyrkvið í gögnum,alvitur ungarörlög drýgja.Þær á sævarströndsettust að hvílast,drósir suðrænar,dýrt lín spunnu.
- Ein nam þeirraEgil að verja,fögur mær fira,faðmi ljósum.Önnur var Svanhvít,svanfjaðrar dró,en in þriðjaþeirra systirvarði hvítanháls Völundar.
- Sátu síðansjö vetur að þaðen inn áttaallan þráðuen inn níundanauður um skildi.Meyjar fýstustá myrkvan við,alvitur ungar,örlög drýgja.
- Kom þar af veiðiveðureygur skyti,Slagfiður og Egillsali fundu auða,gengu út og innog um sáust.
- Austur skreið Egillað Ölrúnuen suður Slagfiðurað Svanhvítu,en einn Völundursat í Úlfdölum.
- Hann slá gull rauttvið gim fástan,lukti hann allalind baugum vel.Svo beið hannsinnar ljóssarkvonar ef honumkoma gerði.
- Það spyr Níðuður,Njára dróttinn,að einn Völundursat í Úlfdölum.Nóttum fóru seggir,negldar vóru brynjur,skildir bliku þeirravið inn skarða mána.
- Stigu úr sölumað salar gafli,gengu inn þaðanendlangan sal;sáu þeir á bastbauga dregna,sjö hundruð allra,er sá seggur átti.
- Og þeir af tókuog þeir á létu,fyr einn utan,er þeir af létu.
- Kom þar af veiðiveðureygur skyti,Völundur líðandium langan veg.Gekk brúnnarberu hold steikja,ár brann hrísiallþurr fura,viður inn vindþurri,fyrir Völundi.
- Sat á berfjalli,bauga taldi,álfa ljóði,eins saknaði;hugði hann að hefðiHlöðvés dóttir,alvitur unga,væri hún aftur komin.
- Sat hann svo lengiað hann sofnaði;og hann vaknaðiviljalaus;vissi sér á höndumhöfgar nauðiren á fótumfjötur um spenntan.
Völundur kvað:
- Hverjir eru jöfrarþeir er á lögðubestibyrsímaog mig bundu?
- Kallaði nú NíðuðurNjára dróttinn:Hvar gastu, Völundur,vísi álfa,vora auraí Úlfdölum?Gull var þar eigiá Grana leiðu,fjarri hugða eg vort landfjöllum Rínar.
Völundur kvað:
- Man eg að vér meirimæti áttumer vér heil hjúheima vórum:Hlaðguður og Hervörborin var Hlöðvékunn var ÖlrúnKjárs dóttir.
- (Úti stendur kunnigkvon Níðaðar),hún inn um gekkendlangan sal,stóð á gólfi,stillti röddu:Er-a sá nú hýrer úr holti fer.
Níðuður konungur gaf dóttur sinni Böðvildi gullhring þann er hann tók af bastinu að Völundar, en hann sjálfur bar sverðið er Völundur átti. En drottning kvað:
- Tenn honum teygjaster honum er téð sverðog hann Böðvildarbaug um þekkir.Ámun eru auguormi þeim inum frána.Sníðið ér hannsina magniog setjið hann síðaní Sævarstöð.
Svo var gert, að skornar vóru sinar í knésbótum og settur í hólm einn er þar var fyrir landi, er hét Sævarstaður. Þar smíðaði hann konungi alls kyns gersimar. Engi maður þorði að fara til hans nema konungur einn.
Völundur kvað:
- Skín Níðaðisverð á linda,það er eg hvesstasem eg hagast kunnaog eg herðagsem mér hægst þótti.Sá er mér fránn mækiræ fjarri borinn,Sékk-a eg þann Völunditil smiðju borinnNú ber Böðvildurbrúðar minnarbíðk-a eg þess bótbauga rauða.
- Sat hann, né hann svaf, ávalltog hann sló hamri;vél gerði hann heldurhvatt Níðaði.Drifu ungir tveirá dýr sjá,synir Níðaðar,í Sævarstöð.
- Kómu þeir til kistu,kröfðu lukla,opin var illúðer þeir í sáu.Fjöld var þar menjaer þeim mögum sýndistað væri gull rauttog gersimar.
Völundur kvað:
- Komið einir tveir,komið annars dags;ykkur læt eg það gullum gefið verða.Segið-a meyjumné salþjóðum,manni öngum,að ið mig fyndið.
- Snemma kallaðiseggur [á] annan,bróðir á bróður:Göngum baug sjá!
- Kómu til kistu,kröfðu lukla,opin var illúðer þeir í litu.
- Sneið af höfuðhúna þeirraog undir fen fjötursfætur um lagðien þær skálar,er und skörum vóru,sveip hann utan silfri,seldi Níðaði.
- En úr augumjarknasteinasendi hann kunnigrikván Níðaðar,en úr tönnumtveggja þeirrasló hann brjóstkringlursendi Böðvildi.
- Þá nam Böðvildurbaugi að hrósa- - -- - -er brotið hafði:Þorig-a eg að segjanema þér einum.
Völundur kvað:
- Eg bæti svobrest á gulliað feður þínumfegri þykirog mæður þinnimiklu betriog sjálfri þérað sama hófi.
- Bar hann hana bjóriþví að hann betur kunnisvo að hún í sessium sofnaði.Nú hefi eg hefntharma minnaallra nema einnaíviðgjarna.
- Vel eg, kvað Völundur,verða eg á fitjumþeim er mig Níðaðarnámu rekkar.Hlæjandi Völundurhófst að lofti,grátandi Böðvildurgekk úr eyju,tregði för friðilsog föður reiði.
- Úti stendur kunnigkvon Níðaðarog hún inn um gekkendlangan sal.En hann á salgarðsettist að hvílast.Vakir þú, NíðuðurNjára dróttinn?
Níðuður kvað:
- Vaki eg ávalltviljalaus,sofna eg minnstsíst mína sonu dauða;kell mig í höfuð,köld eru mér ráð þín,vilnumk eg þess núað eg við Völund dæma.
- Seg þú mér það, Völundur,vísi álfa,af heilum hvað varðhúnum mínum.
Völundur kvað:
- Eiða skaltu mér áðuralla vinna,að skips borðiog að skjaldar rönd,að mars bægiog að mækis eggað þú kvelj-atkvon Völundarné brúði minniað bana verðir,þótt vér kvon eigim,þá er þér kunnið,eða jóð eigiminnan hallar.
- Gakk þú til smiðjuþeirrar er þú gerðir,þar finnur þú belgiblóði stokkna;sneið eg af höfuðhúna þinnaog und fen fjötursfætur um lagðag.
- En þær skálar,er und skörum vóru,sveip eg utan silfri,senda eg Níðaði;en úr augumjarknasteinasenda eg kunnigrikvon Níðaðar,en úr tönnumtveggja þeirrasló eg brjóstkringlur,senda eg Böðvildi.
- Nú gengur Böðvildurbarni aukin,einkadóttirykkur beggja.
Níðuður kvað:
- Mæltir-a þú það máler mig meir treginé eg þig vilja, Völundur,verr um níta.Er-at svo maður hárað þig af hesti takiné svo öflugurað þig neðan skjótiþar er þú skollirvið ský uppi.
- Hlæjandi Völundurhófst að loftien ókátur Níðuðursat þá eftir.
Níðuður kvað:
- Upp rístu, Þakkráður,þræll minn bestibið þú Böðvildi,meyna bráhvítu,ganga fagurvarinvið föður ræða.
- Er það satt, Böðvildur,er sögðu mér.Sátuð ið Völundursaman í hólmi?
Böðvildur kvað:
- Satt er það, Níðuður,er sagði þér.Sátum við Völundursaman í hólmieina ögurstund,æva skyldi.Eg vætur honumvinna kunnag,eg vætur honumvinna máttag.
Netútgáfan ágúst 1996 https://www.snerpa.is/net/kvaedi/volund.htm
Völundarkviða er frá Runeberg samtökunum í Svíþjóð.
(http://www.runeberg.lysator.liu.se)